03 september 2006

í útlegð...

skal haldið í fyrramálið..Þórsmörk here i come! Er s.s. á leið inn í Bása á morgun og ætla mér að vera skálaverja þar fram í miðjan október. Er búin að pakka allskonar drasli og er þar af leiðandi með hálfa búslóðina með mér....aldrei að vita hvað manni skyldi vanta svona uppá fjöllum! verð samt að hafa varan á þar sem ég get nú ekki bara skotist út í búð ef mig vantar eitthvað...
annað kvöld fæ ég reyndar að prófa að vera svona Palli var einn í heiminum týpa...þar sem engin verður á svæðinu og ég verð alein..í svarta myrkri..ok allir að vorkenna mér núna! það verður sem sagt nógur tími með sjálfum sér þarna inn frá...eins gott að ég er svona bráðskemmtileg:)
jæja nú ætla ég að fara að sofa í hausinn á mér...vakna snemma og bla bla bla....verð reyndar í símasambandi svo ég skal láta alla sem langar að tala við mig fá símanúmerið mitt þar...ekkert gsm samband:( svo læt ég bara aftur í mér heyra eftir miðjan okt..