08 janúar 2008

fögur fyrirheit a nyju ari..

er reyndar ekki byrjuð á einu einasta af fögru fyrirheitunum..en það kemur allt saman. Er byrjuð í nýrri vinnu þar sem ég mun stunda það að selja landanum loðhúfur og flíspeysur fram á vor. Og svo kemur sumarið með múrkskeiðaóm og gúmmítúttum..ohh hvað ég hlakka til. Svíþjóð er nú svo einnig handan við hornið..Stokkhólmur að öllum líkindum..og kemur sér þá vel að kunna Evróvísíon slagarann frá 1984..Diggelo diggelei..svona líka vel! Annars er sænksu námskeið líka á döfinni þar sem ég held að ég komist kannski ekki langt á því að segja bra bra við öllu þó svo að "sænski" yfirmaður minn haldi öðru fram... enn að öðru var árið 2007 bara með besta móti og hlakka ég til alls þess sem árið 2008 mun færa mér á silfurfati..eða þannig.