03 júní 2009

Ég hef engu gleymt þó að ég tali ekki um það

Ja hérna hér, er maður þá bara ekki að flytja búferlum tímabundið á morgun þegar ég kveð minn yndislega Stokkhólm og heilsa mínu ástkæra Ísalandi. Það er allt á milljón við að klára síðustu verkefnin og pökkun er troðið svona inn á milli.

Feltkúrsin kláraðist í síðustu viku og þá tóku við lokagreiningar á sýnum og skýrsluskrif ásamt kynningu á rannsókninni. Þá að sólin hafi leikið við mannskapinn, nema okkur sem vorum inn í helv...skóginum, þá var að sjálfsögðu rigning síðasta daginn (Kirkjubæjarklaustur sælla minninga!) en ég og Inga fórum þá bara inn að greina sýni ;)



en sólin sýndi sig nú nokkra aðra daga.


Það er nú svo. Verð komin heim í eftirmiðdaginn á morgun og hlakka til að knúsa púkana á neðri hæðinni í Fannafoldinni!