10 júlí 2006

annar i þynnku!

ja hérna hér..mikið og skemmtilegt partý var hér á laugardag...mikið drukkið, mikið sungið og almenn gleði. Ofsa gaman að fá skriðuklausturmoldvörpur í heimsókn...dax og albína í stuði eins og alltaf og ragnheiður voða sæt með kúluna sína. haldin var grillveisla með bollu og jellóskotum, spilað á gítar og sungið af mikilli innlifun..kíktum á systrakaffi þar sem ég og inga slógum í gegn á barnum:)


ég á barnum eins og sjá má...

inga skemmti sér líka bak við barinn!


svo er ég búin að setja inn fleiri myndir undir partýmyndir og moldvörpumyndir...

04 júlí 2006

óbyggðirnar kalla...

og ég verð að hlýða þeim....hlóð aðeins batteríin um helgina..fór í bæinn frá klaustri á föstudagskvöld og hélt inn í Landmannahelli á laugardag...fór svo inn í Landmannalaugar á sunnudag og svo fjallabaksleið heim á klaustur á sunnudagskvöld...var mjög ljúft að komast aðeins á fjöll. uppgraftargengið skrapp svo inn í Laka í gærkveldi í sól og blíðu og gekk upp á fjallið Laka...ofsa flott útsýni yfir gígaröðina þaðan...tókum fullt af myndum en er bara ekki búin að setja þær inn í tölvuna mína ....koma seinna..lofa.
annars er bara við það sama hér á klaustri...rigning...svo ekki er búið að vinna mikið í dag..erum bara mest í því að bíða eftir að stytti upp svo við getum farið út að vinna! ofsa gaman..
klausturdjamm um næstu helgi...von er á fríðu föruneyti frá skriðuklaustri og hlökkum við mikið til:)
meira seinna....