04 júlí 2006

óbyggðirnar kalla...

og ég verð að hlýða þeim....hlóð aðeins batteríin um helgina..fór í bæinn frá klaustri á föstudagskvöld og hélt inn í Landmannahelli á laugardag...fór svo inn í Landmannalaugar á sunnudag og svo fjallabaksleið heim á klaustur á sunnudagskvöld...var mjög ljúft að komast aðeins á fjöll. uppgraftargengið skrapp svo inn í Laka í gærkveldi í sól og blíðu og gekk upp á fjallið Laka...ofsa flott útsýni yfir gígaröðina þaðan...tókum fullt af myndum en er bara ekki búin að setja þær inn í tölvuna mína ....koma seinna..lofa.
annars er bara við það sama hér á klaustri...rigning...svo ekki er búið að vinna mikið í dag..erum bara mest í því að bíða eftir að stytti upp svo við getum farið út að vinna! ofsa gaman..
klausturdjamm um næstu helgi...von er á fríðu föruneyti frá skriðuklaustri og hlökkum við mikið til:)
meira seinna....

1 ummæli:

dax sagði...

get ekki beðið! :-D