06 júlí 2009

seinna meir...

mun ég væntanlega fara að blogga meir en ég hef gert síðastliðinn mánuð. Er búin að vera að grafa á Hólmi í Nesjum og í Öræfasveitinni síðan ég kom heim í byrjun júní. Netsamband er því af skornum skammti og líður bloggið mitt fyrir það (alls ekki bloggleti höfundar!). Eigum nú rúma viku eftir hér á Höfn og spurning hvort fátæki stúdentinn (það er s.s. ég) geri aðra tilraun til að fá sér Humarsúpu á Humarhöfninni. Kannski að ég ætti að rukka inn máltíðina sem mér var lofað í fyrra (sjá hér).