29 janúar 2009

upprisin er hún...húrra húrra...

það ætlar ekki að sjá fyrir endann á þessum tölvuvandræðum mínum! Tölvan mín dó s.s. aftur á þriðjudagskvöldið og leit þá út fyrir að hún væri búin að gefa upp öndina endalega..en nei, í dag reis hún aftur upp frá dauðum en bara í ca.klst...þá dó hún aftur. Svo reis hún upp aftur nú seint í kvöld og er búin að tóra núna í rúma klst. Á endanum nær hún að slá út vinningshafann sjálfan í upprisukeppninni ....

Er annars að fara út á land á morgun...ætla í sumarbústað með Ingu, Elinu og vini hennar í bústað sem foreldrar Elinar eiga einhverstaðar nálægt Linköping, held ég. Ætla að vera Pollýanna um helgina og slappa af...takast svo á við tölvukrísu aftur á mánudag...

26 janúar 2009

Grátur og gnístan tanna!

jebb, tölvan mín dó í gær! Allt í einu slökknaði bara á henni þar sem ég var að vinna í fyrirlestrinum og ritgerðinni sem ég á að skila á morgun! og ég gat ekki með nokkru móti kveikt á henni aftur. En eftir að hafa panikað, grenjað og fríkað út...í þeirri röð...hafði ég samband bæði við Söndru og Breka...Söndru út af möguleikanum á samskonar vandamálum með samskonar tölvu og þeirri staðreynd að það er alltaf möguleiki á samskonar veseni á okkur...með allt! og Breka vegna óendanlegrar visku hans um tölvur og tölvuvandamál...Svo eftir að hafa heyrt frá þeim og möguleikum á vandamálalausnum fríkaði ég aðeins minna út en endaði á því að fara í heitt bað til að slaka á...því ekkert gerðist með helv..tölvuna og ég varð bara að bíða og reyna að kveikja á henni öðru hvoru. Það gekk svo eftir seint í gærkveldi og þa virtist vera allt i lagi með hana, öll gögn ennþa til staðar nema það sem ég var búin að gera um morguninn svo ég er búin að vera að gera það allt aftur í dag. Breki tékkaði svo á henni þegar hann koma heim og það virðist ekkert hafa beint hrunið en hann hafði samband við einhvern mactölvugaur í dag sem sagði að þetta gæti gerst þá og þegar aftur og þá væri alltaf hætta á því að hún myndi ekki rísa upp frá dauðum aftur!!! Hún er þar að auki í slow motion og alltaf að frjosa öðru hverju...fyrir utan svona dinti eins og að setja ekki kommu yfir stafi nema þegar henni hentar..eins og sest i þessum pósti...er hætt að reyna að tala hana til með það...er bara fegin að verkefnin min eru á ensku svo eg þarf ekki það mikið a þessum fjandans kommum að halda..na na na bú bú.
Allavega, þá held ég að ég verði að væla í bankanum fyrir nýrri tölvu á næstunni og enda svo örugglega bara í skuldafangelsi í sumar. Eru ekki annars bara agalega kósy Kvíabryggju...þægileg rum og o.fl. í boði Árna Johnsen?

22 janúar 2009

appelsínugul upprifjun....

í tilefni af appelsínugulur.is þá ákvað ég að rifja upp nokkrar appelsínugular minningar...









16 janúar 2009

wish I was there.....


akkúrat núna standa yfir útgáfutónleikar í Iðnó hjá Hjörvari í tilefni af nýju plötunni hans A copy of me og mig laaangar rosa mikið til að sjá þá...panta video af þeim.

Þá ætlar hann einnig að frumsýna nýtt myndaband við lagið See the Sea sem er uppáhaldslagið mitt á plötunni...er að fíla plötuna veeel og er einmitt að blasta hana nú í imove græjunum mínum :) svona til að vera með í anda...

P.s. tónlistina hans er að finna á myspace: http://www.myspace.com/hjorvarmusic