29 janúar 2009

upprisin er hún...húrra húrra...

það ætlar ekki að sjá fyrir endann á þessum tölvuvandræðum mínum! Tölvan mín dó s.s. aftur á þriðjudagskvöldið og leit þá út fyrir að hún væri búin að gefa upp öndina endalega..en nei, í dag reis hún aftur upp frá dauðum en bara í ca.klst...þá dó hún aftur. Svo reis hún upp aftur nú seint í kvöld og er búin að tóra núna í rúma klst. Á endanum nær hún að slá út vinningshafann sjálfan í upprisukeppninni ....

Er annars að fara út á land á morgun...ætla í sumarbústað með Ingu, Elinu og vini hennar í bústað sem foreldrar Elinar eiga einhverstaðar nálægt Linköping, held ég. Ætla að vera Pollýanna um helgina og slappa af...takast svo á við tölvukrísu aftur á mánudag...

1 ummæli:

bryn sagði...

Vonandi hafið þið það gott og að þú getir slappað aðeins af. Ég sárvorkenni þér með tölvuna. Bið að heilsa Ingu!