29 mars 2009

flakka, flakka til og frá

jebb, á morgun ætla ég á smá flakk með skólanum. Förum til Halland að skoða fornleifar og munum gista í Gautaborg. Nú þarf ég því að fara að pakka svo ég gleymi nú ekki öllu sem ég þarf að hafa með. Var annars frekar dofin í dag, fór á Vintage Mässan í dag og svo gleymdi ég að fara úr lestinni heima hjá mér. Þannig rúntaði ég bara með henni á næstu stöð og svo til baka aftur en þá stóð ég sko í dyrunum tilbúin að stökkva af!
Set inn af Hallandsferðinni þegar ég kem til baka og aldrei að vita nema myndirnar úr Ölandsferðinni í Október rati bara inn í leiðinni.