03 febrúar 2008

Island undir dönsku krununa a ny!!!

Þessi uppástunga er í boði Ingu illkvittnu...
Hélt fræðafélagsmatarboð í gærkveldi. Fínt kvöld með mjöög svo skemmtilegum umræðum..allt frá þeim hugmyndum að banna forsetafrú vorri að tala við KGB-morðingjan Pútín á þýsku o.fl.... til hugmynda um að taka upp konungsveldi á Íslandi s.s færa ísland aftur undir stjórn dönsku krúnunnar..þeir eru nefnilega mun myndalegri, dönsku prinsarnir, heldur en grísinn okkar!! Kíktum svo á Boston í smá en svo bara heim.
Var svo í bollukaffi í foreldrahúsum í dag þar sem Solla stirða/Thelmulingurinn fór í kollhnísa og gerði fótalyftur af krafti í búining með bleikt hár!! Rosa fín...

2 ummæli:

OFURINGA sagði...

mér finnst það fullkomlega raunhæft að við fáum hann Jóakim til okkar. Það mun örugglega fara verulega vel um hann hérna! Hlakka bara til!

lenacd sagði...

http://www.kongehus.dk/index.php?menu=Forside