17 janúar 2006

sorry, soldið langt siðan

ég lét í mér heyra hér en bæti úr því hér og nú...er nú komin aftur til jórvíkur og frétti að ég hefði misst af snjókomunni hérna þetta árið...er bara ágætis veður núna s.s. engin snjór og bara smá sólskin meira að segja.
Fór að kafa um helgina..það var alveg frábært þrátt fyrir skítakulda og tilfinningaleysi í tánum. Fórum eldsnemma á sunnudagsmorgun kl.6.45 og keyrðum í 2 tíma í námu sem er full af vatni og er mikið notuð sem æfingastaður fyrir kafara. Var eins og ofvaxinn bangsi með allann búnaðinn og í þurrbúningnum...sem þar að auki var svo þungur...sko búnaðurinn...að ég gat varla gengið né staðið upprétt án þess að detta aftur fyrir mig en samt rosa gaman..kafaði niður á 9m en átti á smá erfiðleikum með að sökkva..var búin að fá svo mikið af lóðum til að þyngja mig að ég mátti ekki fá fleiri:( svo ég dólaði mér bara í rólegheitum niður á botn...verð að æfa mig betur í að sökkva..var frekar mikið kalt þar sem vatnið var um 6*C s.s skítkalt en það var allt í lagi í fyrri köfunninni sem var fyrir hádegi...í seinni köfunninni varð mér aftur á móti skítkalt og sérstaklega þegar ég var að æfa mig í að taka af mér gleraugun og setja þau aftur á mig..shit hvað það var kalt..sérstaklega fyrir svona þekkta kuldaskræfu eins og mig:)...en bíð spennt eftir næstu köfun...varð reyndar lasin í gær..komst varla framúr og staulaðist um eins og gamalmenni...held bara að amma sé sprækari en ég var í gær..er að lagast í dag en verð bara að passa mig betur..nenni þessu nú ekki neitt reglulega...bæði vont og leiðinlegt:(...en svona er þetta bara..
Gat s.s ekki farið í skólann í gær en það er sem betur fer ekki tími fyrr en á morgun og þá verð ég örugglega orðin sprækur sem lækur svo þetta kemur allt með kalda vatninu..eða var það heita vatninu..allavega eitthvað svoleiðis..ætla að hætta núna og fara í heitt bað..ahh.

2 ummæli:

OFURINGA sagði...

Kalda vatnid var thad vaenan! Thessi kofunarreynsla hljomar nu ekki mjog vel. Vid faum ekkert ad fara ut ad kafa fyrr en um paskana...thangad til verum vid ad lata sundlaugina duga! En hvar fengudi thurrbuninga?

Guggan sagði...

við fáum búningana frá svona "dive store warehouse" minnir að það kosti £15 fyrir daginn og £25 fyrir helgina...