04 apríl 2006

dararamm dararamm....

jæja já þið segið það...biðst velvirðingar á því að vorið sem ég kom með í gámnum mínum er búið! var bara pláss fyrir nokkra daga fyrir utan hvað samningaviðræður voru tímafrekar og dýrar...
allavega...er ekkert yfir mig hrifin af veðrinu núna...eins gott að ég er að vinna inni þessa daganna!
hmm...er annars farin að hlakka til sumarsins...þó svo að hann gamli minn hafi dáið drottni sínum í vetur (var orðinn svo gamall og of dýrt að lækna hann)og mun þar af leiðandi ekki vera fær um að flytja mig um fjöll og firnindi í sumar...jarðaförin verður auglýst síðar...
en alltaf kemur maður í manns stað...réttara bíll í bíls stað...og er þegar kominn staðgengill á svæðið...ekki jafn skemmtilega ófríður...hann er bara grænn og voða sætur eiginlega...svo fræðafélagsútilegur þurfa vonandi ekki að liggja niðri í sumar!
sei sei...

Engin ummæli: