27 desember 2006

almennt andleysi..

hrjáir mig þessa daganna. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það sé heilsuspillandi að skrifa lokaverkefni á háskólastigi og þess vegna er ég að spá í að senda Háskóla Íslands reikning fyrir útlögðum kostnaði sakir andlegra og líkamlegra kvilla sem allir eiga rætur sínar að rekja til B.A.-ritgerðar minnar. Kannski að ég geti einnig krafist skaðabóta? Allavega er ekki mikið fjör á þessum bæ...öfunda soldið Dax áhyggjulausa í Norge yfir jólin.

Annars er ég líka að leita mér að tímabundinni vinnu eftir áramót, frá miðjum jan fram á vor. Svo ef það er einhver sem veit um skemmtilegt og vel launað starf þar sem ég get látið ljós mitt skína í nokkrar vikur/mánuði endilega látið mig vita.

Svo er glamúr jólaboð Fræðafélagsins á næsta leiti...

1 ummæli:

dax sagði...

Sendi pepp kvedjur stelpa, thu getur thetta thratt fyrir andlegt og likamlegt tjon!! sjaumst i kvella