26 nóvember 2007

í sól og sumaryl...

verð ég um páskana..jíbbbíí. Ákvað að elta hina meðlimi Melsted mafíunnar til Kanarí um páskanna...pabbi var reyndar búinn að gera ráð fyrir að "litla barnið" kæmi líka, enda ekki ætlunin hjá mafíunni að skilja mann eftir eina og yfirgefna. Það verður líka ágætt að komast í smá frí svo ég verði ekki búin að fjárfesta í snöru undir vorið..:( ég er s.s í skemmtilegastu vinnu í heimi...
Allavega þá er ég búin að finna köfunar..etwas sem býður upp á ferðir að kafa út um alla eyju og lengra, bjóða frítt pick-up á hótel o.fl. gaman..gaman..

2 ummæli:

bryn sagði...

úh hljómar vel. Oh mig langar til þess að fara til heitra landa og kafa.
Hefur atvinnuleitin ekki skilað neinum árangri, þ.e. betra en hótelið?

Guggan sagði...

veit ekki..kannski er e-ð við sjóndeildarhringinn, vonandi fer e-ð að gerast bráðum. Annars líður mér eins og ég sé með geðhvörf..sumir dagar ágætir, aðrir ömurlegir..hehehe